Leigufyrirkomulag
- Þegar pantað er í gegnum síðuna er fyrsti mánuður leigunnar, ásamt afhendingargjöldum ef við á, gjaldfærður af greiðslukorti við pöntun.
- Næsta greiðsla er dregin mánuði eftir afhendingu og eftir það mánaðarlega á sama degi, þar til leigu er sagt upp.
- Uppgefnar kortaupplýsingar eru geymdar á öruggan hátt hjá greiðslumiðlun (Teya) — Heimaform geymir aldrei kortanúmer.
- Eftir að pöntun berst þá reynum við eftir fremsta megni að afhenda æfingatækið/vöruna næsta virka dag.
- Heimaform rukkar ekkert fyrir að koma með vöruna til leigutaka ef leigutaki skuldbindur sig í 3 mánuði og uppgefið heimilisfang er í þéttbýli á höfuðborgarsvæðinu.
- Ef leigutími er ekki bundinn í þrjá mánuði þá rukkar Heimaform 8.900 kr. fyrir heimsendingu og uppsetningu í þéttbýli á höfuðborgarsvæðinu.
Leigutími
- Leigutíminn er ótímabundinn og leigutaki þarf að segja leigunni upp í gegnum tölvupóst.
- Eftir að leigu hefur verið sagt upp kemur starfsmaður frá Heimaform innan 3 daga að sækja æfingatækið/vöruna nema um annað sé samið.
- Heimaform rukkar 8.900 kr. fyrir að sækja æfingatækið/vöruna þegar leigunni hefur verið sagt upp. Heimsending og sótt er aðeins í boði í þéttbýli á höfuðborgarsvæðinu.
- Leigutaka er einnig heimilt að skila æfingatækinu/vörunni sjálfur, sér að kostnaðarlausu, á starfsstöð Heimaform að Vesturvör 32b, 200 Kópavogi, á opnunartíma.
Ábyrgð og tryggingar
- Ábyrgð og áhætta á leigðum æfingatækjum/vörum færist yfir á viðskiptavin þegar æfingatækið/varan hefur verið afhent á þeim stað sem leigutaki skráði þegar bókun var framkvæmd.
- Eftir að ábyrgð á æfingatæki/vöru hefur færst yfir á viðskiptavin þá er viðkomandi ábyrgur fyrir öllu tjóni og því ef varan/búnaðurinn glatast.
- Æfingatækið/varan skal vera hrein að leigutíma liðnum. Ef því er ekki sinnt skal greiða þrifagjald — 8.900 kr.
Kaup á tækjum
Eftirfarandi á við þegar tæki er keypt af heimaform.is, ekki leigt.
- Kaupverð er greitt að fullu með greiðslukorti við pöntun. Verð eru með virðisaukaskatti.
- Eignarréttur færist til kaupanda við fulla greiðslu. Áhætta af tækinu færist við afhendingu.
- Við afhendum á höfuðborgarsvæðinu gegn gjaldi sem kemur fram í körfunni, eða tækið má sækja á Vesturvör 32b, 200 Kópavogi.
- Reynist tæki ekki til á lager eftir að pöntun berst höfum við samband og endurgreiðum að fullu.
Réttur til að falla frá kaupum
Kaup á heimaform.is eru fjarsala í skilningi laga nr. 16/2016 um neytendasamninga.
- Þú hefur 14 daga frá því þú tekur við tækinu til að falla frá kaupunum, án þess að tilgreina ástæðu.
- Tilkynning um að fallið sé frá kaupum sendist á info@heimaform.is eða í síma 497 0210 innan frestsins. Nóg er að tilkynningin sé send áður en fresturinn rennur út.
- Við endurgreiðum kaupverðið, ásamt sendingarkostnaði sem greiddur var við pöntun, innan 14 daga frá því tilkynningin berst — með sömu greiðsluleið og notuð var við kaupin. Okkur er heimilt að bíða með endurgreiðslu þar til tækið er komið til baka.
- Þú berð kostnað af því að skila tækinu. Við getum sótt það gegn gjaldi; hafðu samband og við gefum upp verðið áður en lagt er af stað.
- Þú mátt prófa tækið eins og í verslun. Hafi það verið notað umfram það er okkur heimilt að draga frá verðrýrnun sem af því hlýst.
Ábyrgð á keyptum tækjum
- Tveggja ára ábyrgð er á öllum keyptum tækjum samkvæmt lögum nr. 48/2003 um neytendakaup. Hún tekur til galla sem voru til staðar við afhendingu.
- Ábyrgðin nær ekki til eðlilegs slits, tjóns af rangri notkun eða uppsetningu, né skemmda af völdum óhapps.
- Komi galli í ljós skaltu tilkynna hann án ástæðulauss dráttar á info@heimaform.is. Við gerum við tækið, skiptum því út eða endurgreiðum, eftir því sem við á.
- Náist ekki samkomulag getur þú vísað málinu til kærunefndar vöru- og þjónustukaupa.
Allur texti og verð á heimasíðu Heimaform eru birt með fyrirvara um breytingar.
Spurningar? Hringdu í okkur í síma 497 0210 eða kíktu við á Vesturvör 32b, 200 Kópavogi — opið mán–fös 09:00–16:00.